AÐALFUNDARBOÐ 2026, frá Landssambandi blandaðra kóra Aðalfundur LBK verður haldinn laugardaginn 21. nóvember 2026, kl. 10.00-12.00 í safnaðarheimili Hjallakirkju í Kópavogi, (gengið inn frá Hlíðarhjalla) Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf; starfsskýrsla stjórnar, reikningar, kosningar og önnur mál. Kynnt verður stofnun KÓRÍS, heildarsamtaka allra kórasambanda og félags kórstjóra, ýmis fyrirhuguð verkefni LBK á árinu 2027 og sagt frá ýmsum kórahátíðum sem …
Stofnun KÓRÍS
Stofnun KÓRÍS fór fram 26. september 2026 Hátíðarstofnfundur KÓRÍS – Kórasambands Íslands og undirritun starfssamnings við Menningar,- nýsköpunar- og háskólaráðuneyti. Við hvetjum öll sem eru tengd þessu málefni að mæta og fagna með okkur. Kórfólk, stjórnir kóra, kórstjórar og öll sem hafa áhuga á kórstarfi velkomin! Léttar veitingar verða í boði. Stofnfundurinn fer fram í Tónlistarmiðstöð, Austurstræti 5, 2. hæð. …
Nordklang 2028 í Færeyjum
Nordklang kórmótið verður haldið í Færeyjum dagana 25.-27. maí 2028. Takið dagana frá og hittumst í Færeyjum.
Fjárlagakvöld í Víðisstaðakirkju
Árlegt Fjárlagakvöld verður haldið í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði, fimmtudagskvöldið 26. febrúar 2026 kl. 19:30. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir. Bláu og gulu bækurnar eru seldar á staðnum fyrir þau sem ekki eiga þær nú þegar. Fjöldi kórstjóra stýrir söngnum. Eitt er víst að það verður sungið af hjartans lyst!
Árlegt fjárlagakvöld LBK
Þann 6. mars 2025 milli klukkan 19:30-22:00 verður haldið árlegt fjárlagakvöld Landssambands blandaðra kóra í Hjallakirkju, Kópavogi. Kórsöngvarar allra kóra sameinast þetta kvöld í söng á hinum gömlu góðu lögum úr Íslensku söngvasafni sem aldrei klikka! Allir velkomnir. Enginn aðgangseyrir. Bláu og gulu bækurnar seldar á staðnum fyrir þau sem ekki eiga þær nú þegar. Fjöldi kórstjóra stýrir söngnum. Þarna …
LBK auglýsir tvo ferðastyrki
Kæru kórar. Gleðilegt ár og góðar óskir um ánægjulegt og árangursríkt kórstarf á árinu. Hápunktur norræns samstarfs á vettvangi kórsöngs er kórahátíðin NORDKLANG í Oslo dagana 6.-10.ágúst 2025. https://nordklang.no/en „early-bird“ verð er í boði til loka janúar. Sjá hér allar útskýringar. https://nordklang.no/priser-og-frister LBK hvetur kórsöngvara og heila kóra til að taka þátt. Nordklang býður upp á glæsilegar vinnusmiðjur og kórsöngvarar …





