Aðalfundur LBK

AÐALFUNDARBOÐ 2026, frá Landssambandi blandaðra kóra

Aðalfundur LBK verður haldinn laugardaginn 21. nóvember 2026, kl. 10.00-12.00 í safnaðarheimili Hjallakirkju í Kópavogi, (gengið inn frá Hlíðarhjalla)

Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf; starfsskýrsla stjórnar, reikningar, kosningar og önnur mál.
Kynnt verður stofnun KÓRÍS, heildarsamtaka allra kórasambanda og félags kórstjóra, ýmis fyrirhuguð verkefni LBK á árinu 2027 og sagt frá ýmsum kórahátíðum sem LBK/Kórís eiga aðild að árin 2027 og 2028, og langþráðum áfanga verður fagnað: opnun heimasíðu LBK!

Boðið verður upp á morgunverð á fundinum.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfangið: lbk.stjorn@gmail.com
Og látið vita hvort þið verðið gegnum fjarfund eða á staðnum.

Hægt verðu að fylgjast með fundinum gegnum Messenger.
Vonast er eftir góðri mætingu frá aðildarkórum.
Velkomið er að senda fleiri en einn fulltrúa kórs til fundarins.

Lög LBK fylgja hér í viðhengi. Óski aðildarkórar eftir að leggja til lagabreytingar eða koma með tillögur að verkefnum þarf slíkt að berast til stjórnar 2 vikum fyrir aðalfund.

Stjórn LBK er skipuð 5 aðalmönnum og 2 varamönnum. Stjórnin fundar mánaðarlega yfir vetrartímann.
Stjórnin er þannig skipuð:
Margrét Bóasdóttir, formaður, Lenka Mateova, kórstjóri Samkórs Kópavogs, Egill Gunnarsson, kórsöngvari í Hljómeyki og stjórnandi Raddbandafélagsins, Kolbrún Einarsdóttir, Söngfélag Skaftfellinga og Birna Birgisdóttir, Samkór Kópavogs.
Varastjórn: Sigrún Þorgeirsdóttir, stjórnandi Selkórsin og Svanhvít Traustadóttir frá RAUST.

Með söngkveðju – fyrir hönd stjórnar,
Margrét Bóasdóttir
formaður.