Kæru kórar.
Gleðilegt ár og góðar óskir um ánægjulegt og árangursríkt kórstarf á árinu.
Hápunktur norræns samstarfs á vettvangi kórsöngs er kórahátíðin NORDKLANG í Oslo dagana 6.-10.ágúst 2025.
https://nordklang.no/en
„early-bird“ verð er í boði til loka janúar. Sjá hér allar útskýringar.
https://nordklang.no/priser-og-frister
LBK hvetur kórsöngvara og heila kóra til að taka þátt. Nordklang býður upp á glæsilegar vinnusmiðjur og kórsöngvarar geta skráð sig þó kórinn í heild sinni fari ekki.
En LBK vill styðja aðildarkóra til þátttöku og stjórn Nordklang býður fram möguleika til að þátttökukórar geti tekið þátt í tónleikum auk þess að taka þátt í vinnusmiðjum.
LBK býður fram ferðastyrki fyrir aðildarkóra sem fara og taka einnig þátt í tónleikahaldi á Nordklang.
Í boði eru tveir styrkir, kr. 200.000 hvor. Annar styrkurinn er eingöngu til þátttöku á Nordklang í Oslo, en hinn styrkinn má einnig sækja um til að taka þátt í annarri kórahátíð eða keppni á árinu 2025.
Umsóknir sendist á netfangið: lbk.stjorn@gmail.com . Umsóknarfrestur er til miðnættis sunnudaginn 9. Febrúar 2025. Úthlutun styrkjanna verður í febrúar.
