Þann 6. mars 2025 milli klukkan 19:30-22:00 verður haldið árlegt fjárlagakvöld Landssambands blandaðra kóra í Hjallakirkju, Kópavogi.
Kórsöngvarar allra kóra sameinast þetta kvöld í söng á hinum gömlu góðu lögum úr Íslensku söngvasafni sem aldrei klikka!
Allir velkomnir. Enginn aðgangseyrir. Bláu og gulu bækurnar seldar á staðnum fyrir þau sem ekki eiga þær nú þegar.
Fjöldi kórstjóra stýrir söngnum. Þarna verður sungið af hjartans lyst!

