Verkefni

LBK stendur ýmist fyrir eða tekur þátt í fjölmörgum verkefnum á hverju starfsári.

Í byrjun árs er Fjárlagakvöld, þar sem sungið eru upp úr „Fjárlaga“-bókunum  og  svo er söngur í Hörpuhorni í lok árs.

Í samstarfi við Félag íslenskra kórstjóra hefur LBK staðið fyrir vinnusmiðjum og tónleikum. Einnig var gott samstarf við FÍK um Nordklang hátíðina sem haldin var í Reykjavík árið 2022.

Að lokum má geta samstarfs þegar haldið var upp á 80 ára afmæli íslenska lýðveldisins árið 2024. Þá var samkeppni um nýtt kórverk og flutningur á því. LBK tók þátt í undirbúningi og framkvæmd tengda þessu. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum bauð upp á að kórar kæmu fram í Almannagjá sem hluti af hátíðahöldunum og LBK vann að því að skipuleggja viðburðina. Þessi kórsöngur á Þingvöllum hefur síðan verið árlega í sumarbyrjun.