Upphaf

Aðdragandinn að stofnun sambandsins var sá, að á félagsfundi Söngfélagsins I.O.G.T. árið 1937 eða 1938, hóf þáverandi söngstjóri söngfélagsins, Jakob Tryggvason, máls á þörfinni fyrir stofnun Landssambands blandaðra kóra og kvennakóra. Lagði hann til að Söngfélag I.O.G.T. gengist fyrir þessu máli sem það og gerði.

Stofnkórarnir voru fimm: Kantötukór Akureyrar stofnaður 1932, Söngfélag I.O.G.T stofnaður 1932, Sunnukórinn á Ísafirði stofnaður 1934, kór Róberts Abrahams á Akureyri stofnaður 1936 og Vestmannakórinn í Vestmannaeyjum stofnaður 1937.

Stofnfundurinn var haldinn 7. desember 1938.

Fyrstu stjórn skipuðu Jón Alexandersson, formaður, Jakob Tryggvason, ritari og Bent Bjarnason, gjaldkeri. Höfðu þeir allir átt sœti i undirbúningsnefnd.

Frá 1941-1961 var starfandi söngmálaráð á vegum sambandsins. Í bví áttu sœti söngstjórar sambandskóranna og sá söngmálaráð um alla útgáfustarfsemi.

Helstu söngstjórar sem störfuðu á vegum LBK á upphafsárunum voru Björgvin Guðmundsson, Jónas Tómasson, dr. Viktor Urbancic, dr. Róbert Abraham Ottósson og Jóhann Franz Jóhannsson (Jan Morávek). Einnig er vert að minnast Steindórs Björnssonar frá Gröf, sem var ritari LBK í 15 ár og var kjörinn heiðursfélagi sambandsins. Steindór ánafnaði LBK á sinum tima nótnasafn sitt allt, ef það mœtti verða vísir að nokkurs konar tónbókasafni.

Formenn LBK hafa verið: Jón Alexandersson, Guðmundur Benjamínsson, Edvald Malmkvist, Gísli Guðmundsson, Halldór Guðmundsson, Erlingur Hansson, og Garðar Cortes.
Árið 2013 var landssambandið á vissan hátt endurvakið, en þá hafði starfsemi þess verið lítil sem engin síðan fyrir aldamót ef frá er talin þátttaka í norrænu samstarfi.

Margrét Bóasdóttir var kjörin formaður á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar haustið 2013.