Lög

1. gr.

Sambandið heitir Landssamband blandaðra kóra, skammstafað LBK. Heimili þess og varnarþing fylgir lögheimili formanns hverju sinni.

2. gr.

Tilgangur LBK. er að:

  1. efla og styðja starf blandaðra kóra á Íslandi
  2. efla og styðja samstarf blandaðra kóra á Íslandi
  3. safna og miðla upplýsingum um starfsemi blandaðra kóra
  4. efla og styðja erlend samskipti í kórastarfi
3. gr.

Tilgangi sínum hyggst LBK ná með því að:

  1. halda úti vefsetri LBK; lbk.is
  2. standa að söngmótum og námskeiðum
  3. kynna viðburði og starf kóra gegnum vefsetur og póstlista
  4. efla tengsl við sambærileg sambönd erlendis
4. gr.

Félagar í LBK. eru blandaðir kórar sem sótt hafa um aðild og greitt hafa árgjald til sambandsins. Aðild fellur niður hafi árgjald ekki verið greitt, að undangenginni ítrekun stjórnar.

5. gr.

Aðalfundur fer með æðsta vald í LBK. Aðalfundur skal haldinn ár hvert að hausti fyrir 1. desember. Stjórn skal boða til aðalfundar skriflega til stjórna kóranna með a.m.k. mánaðar fyrirvara.

Í fundarboði skal koma fram dagskrá fundarins. Greint skal frá meginefni tillagna sem leggja á fyrir fundinn. Aðalfundir LBK eru opnir öllum aðildarfélögum, en aðeins tveir fulltrúar hvers aðildarkórs hafa atkvæðisrétt. Tillaga hlýtur samþykki ef meirihluti atkvæðisbærra fulltrúa greiðir henni atkvæði sitt. Aðalfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað.

6. gr.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Reikningar.
  3. Umræða um skýrslu og reikninga.
  4. Tillögur og lagabreytingar.
  5. Ákvörðun árgjalds.
  6. Kosning formanns.
  7. Kosning stjórnar- og varamanna.
  8. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
  9. Önnur mál.
  10. Fundargerð lesin og borin upp til samþykktar.
7. gr.

Í stjórn landssambandsins sitja fimm stjórnarmenn og tveir í varastjórn. Tveir stjórnarmenn eru kosnir á hverju ári og formaður annað hvert ár.
Stjórnin skiptir með sér verkum. Kjörtími stjórnarmanna er tvö ár. Varastjórn er kosin til eins árs í senn.
Stjórn skal halda a.m.k. fjóra fundi á ári.
Stjórnin fylgir eftir lögum og samþykktum LBK, og kemur fram fyrir hönd þess út á við. Stjórnin skipar nefndir og ráð sem hún telur þörf á og setur reglur um störf þeirra.
Formaður boðar stjórnarfundi. Minnst tveir stjórnarmenn geta óskað eftir fundi og skal hann þá haldinn innan viku frá því að ósk er lögð fram.
Almennur félagsfundur skal haldinn ef fulltrúar minnst 5 aðildarkóra æskja þess.

8. gr.

Fjárhagsár LBK er 1. september til 31. ágúst.

9. gr.

Lögum landssambandsins má aðeins breyta á aðalfundi. Lagabreytingar frá stjórn skulu sendar með aðalfundarboði. Lagabreytingar og tillögur frá aðildarkórum skulu berast stjórn eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund. Lagabreytingar og tillögur verða kynntar á vefsetri LBK eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Lagabreytingar þurfa samþykki 2/3 greiddra atkvæða.

10. gr.

Landsambandinu verður ekki slitið nema 3/4 fulltrúa á aðalfundi greiði því atkvæði.
Fundargerðir og rituð gögn skulu afhent Þjóðskjalasafni. Aðrar eignir skulu renna til tónlistarmála.
Með lögum þessum eru úr gildi fallin öll eldri lög LBK.

 

 

Samþykkt á aðalfundi Landssambandsins blandaðra kóra í Kópavogi 22. nóvember 2014

2 breytingartillögur – feitletraðar – samþykktar á aðalfundi 25. nóv.2017.

Eldri lög LBK eru frá ársþingi sambandsins dagana 20. – 22. sept. 1946 með breytingartillögum frá ársþingum 1976 og 1977.